Færsluflokkur: Ljóð
17.8.2014 | 16:54
Kristján Örn Kristjánsson er á myndinni.
Fimm marka sigur gegn Serbum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Ljóð | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
15.12.2013 | 11:49
Hvað kemur Ólafur Ragnar málinu við?
Umsögn: Bærileg frammistaða. Væri þó annað boðlegt eftir að hafa verið með þessa menn nánast inni í stofu hjá þér síðastliðin fjögur ár? Líklega eru þessar bækur ekki ofarlega á óskalistanum í ár, þú sérð væntanlega ekki mikið eftir vinstri stjórninni og þú kannt ágætlega að meta Ólaf Ragnar Grímsson."
Ég algerlega hata Ólaf Ragnar sem forseta íslands. Hvað kemur hann því við hversu vel (eða illa) ég þekki stíl Össurar og Steingríms?
Og núverandi stjórn "Ríkrastjórn Íslands" á að fara frá sem allra fyrst.
Hvor sagði hvað? | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Ljóð | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
27.6.2012 | 22:36
Auðvitað átti ríkið að eiga Sjóvá áfram
Hvað hefði tekið mörg ár að vinna upp tapið með arðgreiðslum af eðlilega reknu tryggingarfélagi?
Sama með Landsbankann. Ríkið á að eiga hann áfram. Síðan á að einskorða hann við grunnbankaþjónustu með ríkisábyrð á innistæður, en taka alla ríkisábyrgð af innistæðum hjá bönkum sem reka jafnframt fjárfestingasjóði.
11 milljarðar fyrir gjaldþrota félag | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Ljóð | Breytt s.d. kl. 22:39 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
3.4.2012 | 16:39
Síminn hættir öllum viðskiptum á Íslandi.
Leggur 440 milljóna sekt á Símann | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Ljóð | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
1.1.2012 | 11:04
10. Saga Akraness: Það var búið að jarða hana áður en Páll gagnrýndi
Þetta er klúður ársins | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Ljóð | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
8.9.2011 | 10:45
Endimörk
Knörr þú átt, kostafley,
keikur þú horfir úr stafni.
Framtíð æ felst í því
fundvísum treystir þú hrafni.
Áfram svo, endalaust,
á meðan heldur þú nafni.
Lifir þú lífið af
láttu það enda á safni.
Hugur þig hálfa leið
hefur úr óminnisflaumi.
Áræðnin upp þér nær
yfir þó bulli og kraumi.
Allir fá af því nóg
eilíft að standa í glaumi.
Lifir þú lífið af
láttu það enda í draumi.
Fordild oft flekar hug
fjandann við aldrey þó grátum.
Mistökin manna þig,
mótlætistrú ey við játum.
Hugrekki, hamingja,
halda þér yfirleitt kátum.
Lifir þú lífið af
láttu það enda í gátum.
Lífið er lostadans,
leika þar mildi og harka.
Frelsi er fárra völ,
flestir í gegn um það slarka.
Lengst þú nærð líki þér
löngum af krafti að þjarka.
Lifir þú lífið af
láttu það enda án marka.
Ljóð | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
9.4.2011 | 16:58
Að aflokinni atkvæðagreiðslu
Með óbragð í munni um æseif ég kaus
og atkvæði gildu fékk skilað,
en umræðum landans mér hugur við hraus,
á heiftina af einurð var spilað.
Í skútunni þjóðar hver skrúfa er laus;
er skrítið að eitthvað sé bilað?
Varar Íslendinga við | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Ljóð | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
8.4.2011 | 12:31
Íslensk umræðuhefð
Ég viðurkenni á mig allskyns brot
af ósamþykktum hugsunum,
og ef að ég í þrætum kemst í þrot
þríf ég mig úr buxunum.
Á netinu ég naga ófá bök
og nafnleysið þá hvetur mig,
en IP-talan ein er mín svo stök -
það oft í klemmu setur mig.
Litlum fuglum legg ég eyrun við
og Leitis-Gróu þekki ég.
Andstæðingum fáum gef ég frið
og framsóknarmenn hrekki ég.
Mér himinbláa höndin vísar leið
að háleitasta markinu:
að fláræðisins gata verði greið
með grófu hreðjasparkinu.
Harka í ESB-umræðum Framsóknar | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Ljóð | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
18.1.2011 | 17:12
Ranghalarófa
Landið þau erfðu af hagsýnum hjónum
sem höfðu það ræktað svo vel,
og hlunnindin góðu frá heiðum og sjónum
hirtu nú Leggur og Skel.
En vinnan var erfið til viðhalds þeim gæðum
og væntingum gróðæris til,
svo námskeið þau sóttu í fjármagnsins fræðum
og fjárhættu- lærðu þá -spil.
Vini þau fundu með vitneskju næga
um vélráð og arðrán og plott
sem veittu þeim ráðgjöf um verkamenn þæga
og veðlán og peningaþvott.
Og Leggur og Skel töldu leiðina greiða
og lífsgæðakapphlaupið hófst,
en landið á spottprís tókst vinum að veiða
og vefurinn flæktist og ófst.
Þau dönsuðu kónga í ranghalarófu
rambandi á hengiflugsbrún
en ótýndir vinirnir óðar upp grófu
hvert einkavætt peningatún.
Svo stóðust ey loforðin, leiktjöldin hrundu
og Leggur og Skel fengu sjokk.
Af hógværum lánum á herðum nú stundu:
Helvítis Fokkings Fokk!.
Ef holan þig gleypir þú hættir að moka,
á himininn stillir þú mið,
og leggur þá frá þér hvern peningapoka
sem pressar þig niður á við.
En Leggur og Skel þetta lærðu víst ekki
og líklegast moka þau enn
og vefja sig fastar í framtíðarhlekki
sem fjármagnsins- seldu þeim -menn.
Ljóð | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
5.1.2011 | 11:25
Á að grafa flokkinn á miðjum fundi?
Þingflokksfundur VG hefst í dag kl. 12 á hádegi. Fundarhlé verður gert vegna jarðarfarar um kl. 14.30 og áætlað er að fundi verði framhaldið um kl. 17 síðdegis í dag...
Frásögn um margboðað morð
má hér í fréttinni sjá.
Vinstri-Græn varnaðarorð
varla til flokksmanna ná.
Óþreyja og pirringur að aukast hjá vinstri grænum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Ljóð | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)