Bloggfærslur mánaðarins, apríl 2009
26.4.2009 | 09:56
3 flokkar með jafnt kynjahlutfall.
Borgarahreyfingin, Samfylking og Vinstri grænir hafa allir jafnt kynjahlutfall, sýnist mér.
D og B listar mynda því skekkjuna á milli kynja.
Athyglisvert.
Eru þá ekki góðar líkur á því að það verði nákvæmlega jafnt kynjahlutfall í stjórnarmeirihlutanum? Það myndi þá gera þetta enn stærri kvennasigur.
Muni nú til vinstri vora
víst má hugsa um
að meyjar jafnt og menn þá skora
í meirihlutanum.
27 nýir þingmenn | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Ljóð | Breytt s.d. kl. 21:04 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
26.4.2009 | 09:45
Svíaflensa komin til Frakklands (?)
Fyrirsögnin greip mig strax, en reyndist svo röng, því að fréttin er um svínaflensu:
"Fólk gengur um með grímur í Mexíkó til að reyna að forðast smit. Reuters
Svíaflensa komin til Frakklands
"
Fallið hafa frakkar tveir
fyrir svíapest,
og af hræðslu ætla þeir
óðar að kalla á prest.
Svínaflensa komin til Frakklands | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Ljóð | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
19.4.2009 | 16:16
Sáttur við mitt atkvæði...
Ég svaraði þessu eins heiðarlega og ég gat, og get ekki sagt annað en að ég sé mjög sáttur við niðurstöðuna. Vonandi verður fjórflokkurinn ekki verðlaunaður með því að hafa hann einan við kjötkatlana eftir kosningar.
Kosningakompás mbl.is - niðurstaða
Samsvörun svara þinna við svör flokkanna er sem hér segir:
Flokkur Samsvörun Borgarahreyfingin (O) 84% Samfylkingin (S) 77% Lýðræðishreyfingin (P) 64% Framsóknarflokkur (B) 64% Frjálslyndi flokkurinn (F) 62% Vinstrihreyfingin - grænt framboð (V) 62% Sjálfstæðisflokkur (D) 34%
Kosningakompás mbl.is | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
11.4.2009 | 13:40
Verður þetta skýrt betur...
9.4.2009 | 15:03
Erfiðleikar við greiðsluaðlögun...
Fyrir u.þ.b. viku síðan var þjónustufulltrúi Íslandsbanka að segja mér frá möguleikum um greiðsluaðlögun heimilanna í síma. Hann sagðist ætla að senda mér upplýsingar og umsóknarblöð. Litlu seinna fékk ég upplýsingar um að vegna bilunar í tölvukerfi gæti hann ekki sent mér þetta strax. Í þessari viku spurðist ég aftur fyrir um þetta, og enn var tölvukerfið bilað, og því ekki hægt að senda þetta. Ég hef aldrey vitað um jafn langa bilun í tölvukerfum bankanna.
Einnig fékk ég í gær sent heim, frá Valitor, endurnýjað kreditkort með nýjum gildistíma, vegna óviðráðanlegra orsaka. Það var svo sem allt í lagi; en fyrst að þeir voru að hafa fyrir því að útbúa nýtt kort, hvers vegna stendur þá Glitnir á nýja kortinu? Ætli kreditviðskipti fari í gegn um gamla Glitni, en debitviðskipti í gegn um Íslandsbanka? Nei, ég bara spyr.
Örðugleikar að nú steðja,
Íslandsbanki hjálpi mér!:
tölvert styrkir takið hreðja,
tólið brátt hann undan sker.
Þúsundir nýta sér úrræði Íslandsbanka | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Ljóð | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)