Erfiðleikar við greiðsluaðlögun...

Fyrir u.þ.b. viku síðan var þjónustufulltrúi Íslandsbanka að segja mér frá möguleikum um „greiðsluaðlögun heimilanna“ í síma. Hann sagðist ætla að senda mér upplýsingar og umsóknarblöð. Litlu seinna fékk ég upplýsingar um að vegna bilunar í tölvukerfi gæti hann ekki sent mér þetta strax. Í þessari viku spurðist ég aftur fyrir um þetta, og enn var tölvukerfið bilað, og því ekki hægt að senda þetta. Ég hef aldrey vitað um jafn langa bilun í tölvukerfum bankanna.

Einnig fékk ég í gær sent heim, frá Valitor, endurnýjað kreditkort „með nýjum gildistíma“, vegna „óviðráðanlegra orsaka“. Það var svo sem allt í lagi; en fyrst að þeir voru að hafa fyrir því að útbúa nýtt kort, hvers vegna stendur þá „Glitnir“ á nýja kortinu? Ætli kreditviðskipti fari í gegn um gamla Glitni, en debitviðskipti í gegn um Íslandsbanka? Nei, ég bara spyr. Whistling

„Örðugleikar að nú steðja“,

Íslandsbanki hjálpi mér!:

tölvert styrkir takið hreðja,

tólið brátt hann undan sker.


mbl.is Þúsundir nýta sér úrræði Íslandsbanka
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Offari

Ég held að þeir hafi sent þér platkort.

Glitnir sendir gjafakort

Gjöf sem brátt mun deyða.

Hér menn liðið hafa skort

hættulegt að eyða.

Offari, 9.4.2009 kl. 22:47

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband