Það var engin upphitunarhljómsveit...

Dvaldi ég þar drjúga stund,

í dal við sundin blá.

En upphitun með Elsu Lund

alveg fór mér hjá.


mbl.is Shady söng með Stuðmönnum í Laugardal
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Ég átti góða kvöldstund með fjölskyldunni en það var af því að veðrið var gott og mikið af góðu fólki á ferðinni. Skipulagið á svæðinu var mjög íslenskt. Almenningsklósettin voru meira og minnna í lamasessi, stífluð og allt of fá. Hljóðkerfið var annaðhvort bilað eða stjórnað af yfirgripsmikilli vankunnáttu. Í sjoppum og þeim sem gátu boðið uppá eitthvað að borða var alltof lítið starfsfólk, óþjálfað og upp til hópa áhugalaust. Það mynduðust miklar biðraðir sem gengu hvorki né ráku. 

Pétur Óskarsson (IP-tala skráð) 6.8.2007 kl. 09:28

2 identicon

Upphitunarhljómsveitin og Elsa Lund fóru alveg fram hjá mér.  Veit ekki á hvaða tónleikum blaðamaðurinn var á.... en það var alla vega nóg að gera hjá Skúla í að bjarga rafmagninu.

Gunnar (IP-tala skráð) 6.8.2007 kl. 10:11

3 identicon

Þetta er ekta íslenskt dæmi um ónákvæman fréttaflutning íslenskra blaðamanna..... Hvar var þessi Elsa Lund og hljómsveit? Árni Sæberg... endilega segðu okkur meira frá því, eða settu inn rétta frétt - Bestu þakkir.

Sammála Pétri með salernin, sjoppurnar og raforkuna. Ekta íslenskt.... annars frábærir tónleikar hjá Stuðmönnum og gestum.

VR (IP-tala skráð) 6.8.2007 kl. 10:52

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband