6.10.2009 | 06:15
Einmitt
Bankinn minn sagði nú samt í síðasta mánuði að ég gæti vel skorið niður tómstundir barnanna til að eiga auðveldara með að borga reikningana mína, og fengi nú varla mikla fyrirgreiðslu nema það yrði gert.
Þó skuldirnar aukist og skattheimtan með
og mér skipað sé ólina að herða
ég ennþá samt hef ekki í mér það geð
íþróttir barnanna að skerða.
Léttari pyngja landsmanna bitnar ekki á íþróttaiðkun | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Ljóð | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
27.9.2009 | 03:19
Íslandstorrek
Úr mér dregur andans mátt
er ég tregur hugsa fátt
skemmti-legur skemmast brátt
skáldið vegur hrunið flátt.
Illar vísur upp nú spinn
á við krísur hugur minn
dreg ég ýsur, drómann finn,
dreymi skvísur, brjóstin stinn.
Vakna lúinn verka til
vanda snúinn lít úr hyl
auði rúinn, eitt hef spil
er því flúinn, land við skil.
Formenn okkar frelsið dró
flúðu bokkar konungshró
land sem rokkar líf oss bjó
lýð nú fokkar bláleit kló.
Oki þungu undan rís
eiturstungu ríf út flís
opna lungu öskrið kýs
æskutungu Þórs og Týs.
Allt mun þýfið eftir hér
aðeins lífið fylgir mér
karlinn, vífið, krakkaher,
kónar, rífið stein og gler.
Kannski aftur kem ég nár
kauðskur raftur hærugrár
tannlaus kjaftur tungan sár
tæmdur kraftur, úldinn, þrár.
Greiðslubyrði aftur fyrir hrun | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Ljóð | Breytt s.d. kl. 21:22 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
4.8.2009 | 10:00
"Gerir einhver slíkt af ásetningi?"
Já, það eru til ótöluleg dæmi um að þeir sem komast í stóra sjóði telji þá betur komna hjá sjálfum sér, og reyni þá að geyma þá á stöðum sem fyrri eigendur eiga í vandræðum með að nálgast.
Mílusteinn í mikla vegferð lagði
og markaðsfræðin voru þar á hreinu:
Að mylja fljótt og merginn sjúga að bragði.
Myllusteinninn Sjóvá gerði að neinu.
Knésetja menn eigin fyrirtæki af ásetningi? | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Ljóð | Breytt s.d. kl. 10:03 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
20.7.2009 | 09:49
Afar góðar bækur, bíð myndarinnar spenntur
Ég er búinn að lesa fyrstu tvær bækurnar, og sú þriðja kemur á ensku í haust, þannig að hennar er orðið stutt að bíða.
Ég les mjög lítið af sakamálasögum, en kolféll fyrir þessum bókum. Frábær persónusköpun og flétturnar mjög skemmtilegar.
Vonandi verður myndin enn í sýningu þegar ég kem frá Ástrallalíu á ágúst.
Óþreyjufullur ég bíð næstu bókar,
og bíóið sæki er kemst ég loks heim.
Spennandi finnast mér fléttunnar krókar,
já finnst þetta bera af meisturum keim.
Karlinn sem leikur Blomkvist | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Ljóð | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
19.7.2009 | 00:45
"Við bara ræddum saman..."
... sagði Jóhanna, aðspurð um hvort stjórnarþingmenn væru kúgaðir.
Það verður "meira rætt saman" í næstu viku til að koma þessu úr nefnd, því að umsóknin í EB fellur dauð og ómerk ef stjórnin kemst ekki að "sameiginlegri niðurstöðu":
Þegar er staðið, styrkum á fótum
með stoltið í lagi, er sjálfsagt að kanna.
En felldur í duftið af foráttu þrjótum
þú ferð ekki skríðandi til þeirra manna!
Icesave úr nefnd í næstu viku | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Ljóð | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
1.7.2009 | 07:18
Verður ESB aðild auðveldari...
... í þjóðaratkvæðagreiðslu, miðað við þær umræður sem eru um afsal auðlinda í báðum málum?
Þegar stóllinn undir er
afstaðan er skýr:
Þjóðinni nú þegja ber
sem þægar mjólkurkýr.
Icesave erfitt í þjóðaratkvæði | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Ljóð | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
18.6.2009 | 22:50
Dómkirkjan fyrir útvalda
"Komið til mín", sagði Kristur,
"og kærleikann þiggið.
Hvort sem þú rúnum ert ristur,
eða ríkur og dáður.
Í húsi míns föður þú heima
mátt herbergi kalla.
Og Guð minn mun aldrey þér gleyma,
þó gerist þú þjáður."
Er höfðinginn fékk það að heyra
hann helminginn skyldi,
og fannst að það vantaði fleira
og fljótt því við bætti:
"Ef drottinn með heimsókn ég heiðra
hans hús ber að ryðja.
Í öndvegi um mig ég hreiðra,
að áliðnum slætti."
Ljóð | Breytt s.d. kl. 22:53 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
18.6.2009 | 05:30
"Bankinn fékk ekki lyklana"...
Bankinn á ekki að fá lyklana fyrr en á föstudaginn.
Ég er handviss að gjörningurinn verður toppaður með því að skila lyklunum skilmerkilega.
Beint til bankastjórans!
Þó að húsið hálft sé nú
og hálfur bíll í sverði,
létt sú að mér læðist trú
að lyklum skilað verði.
Bankinn fékk ekki lyklana | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Ljóð | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
29.5.2009 | 10:23
Góðærisrök fyrir kreppuráðum!
Hvurs lags eiginlega rök eru það að hygla díselbílum þegar um kreppubjörgunaraðgerðir er að ræða? Á fólk á óseljanlegum bensínbílum að kaupa sér nýjan díselbíl?
Eru rökin út úr kú
sem upp þeir hafa kokkað.
Aukast mun því okkar trú
þeir öllu geti fokkað.
Áfengi og eldsneyti hækka | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Ljóð | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
12.5.2009 | 07:44
Hluti af kaupréttarsamningum eða óvenjuleg öflun rekstrarfjár?
Nú hef ég mjög takmarkaða þekkingu á kaupréttarsamningum, en ég hélt að þeir færu þannig fram að þú færð rétt til að kaupa hlutabréf í viðkomandi fyrirtæki á föstu gengi eftir ákveðinn tíma. Það er þá eflaust bara ein útfærsla?
Það er kannski hægt að kalla þetta einhvers konar kauprétt, en hér virðist vera um það að ræða að Teymi notar sér það að fá lán út úr Glitni (sem var að hluta til í eigu tengdra aðila, er það ekki?) inn í rekstur fyrirtækisins með gerfisölu á hlutabréfum til æðstu stjórnenda. (Ábyrgðin á sölunni, og greiðslum, er hjá Teymi, en aldrey hjá kaupendunum.)
Þetta er þá nákvæmlega eins gjörningar og sambærileg eignarhaldsfélög starfsmanna bankanna, sýnist mér, að öllu leiti öðru en því, að þar fóru engir peningar út úr bönkunum, heldur voru það bara bókfærðar skuldir, á meðan hér er fyrirtæki í rekstri að ná sér í rekstrarfé á óvenjulegum forsendum.
Teymi tók yfir skuldir stjórnenda félagsins | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |