Bloggfærslur mánaðarins, nóvember 2007
24.11.2007 | 16:06
Vikhenda
Leifi heppna líkar vel á Skóla-
vörðuholti. Hann er þar
með Hallgrímskirkju að dóla.
Ljóð | Breytt s.d. kl. 16:07 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
22.11.2007 | 10:23
Nú skal prófa
Fiskiát ég auka vil,
áttatíu grömm á dag,
vonandi það verður til
ég vandi meira kvæðabrag.
Fiskur eykur minni og gáfur | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Ljóð | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
19.11.2007 | 13:21
Raunir gítarleikara...
BEST ER AÐ LEIKA Á BÖLLUM
HJÁ BROSMILDUM VEITINGAKÖLLUM
EN GÁTAN ER HÉR
HVORT GAMAN ÞAÐ ER
EF G-STRENGUR SÍGUR HJÁ ÖLLUM.
Ljóð | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
8.11.2007 | 15:29
Ýturvaxnar löggur
Eitt sinn menn sér börðu á brjóst,
en bumbur núna þenja.
Eitthvað til í slagnum slóst
og slasaðist þá frenja.
Ekki sannað að bumbuslagur" hafi leitt til slyss | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Ljóð | Breytt s.d. kl. 15:31 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
7.11.2007 | 15:20
Stærðin skiptir máli
Aukavigt er Emmu kíf,
því allt of þröngt er prjálið.
Já, kryddin á því standa stíf
að stærðin, það sé málið.
Kryddpía berst við aukakílóin | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Ljóð | Breytt s.d. kl. 15:21 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
1.11.2007 | 23:45
Slaka...
Ef hann leikur alveg ber
hann oftast verður stífur.
Svæðanuddið öflugt er
það eina sem að hrífur.
Hilmir Snær nakinn í kvikmyndum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Ljóð | Breytt s.d. kl. 23:49 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)