23.9.2007 | 00:45
Málið er að koma framkvæmdum í gang
Ef kostnaði segir þú satt og rétt frá,
þá svæfa þeir málin í nefndum.
En fegrir þú tölur þá færðu strax já,
það fylgist svo enginn með efndum.Flest verkefni fram úr áætlun | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Nákvæmlega!
Þetta verður ekki útskýrt með betri hætti.
Sigurður Viktor Úlfarsson, 23.9.2007 kl. 01:04
Takk fyrir.
Billi bilaði, 23.9.2007 kl. 12:06
Sjaldan er góð vísa of oft kveðin.
Bara að kvitta fyrir mig, kæri bróðir, og hvetja þig áfram!!!
Gott hjá þér!
Kveðja frá Akureyri
Jónína Ingibjörg (IP-tala skráð) 23.9.2007 kl. 13:05
Þakka þér, systir mín góð.
Billi bilaði, 23.9.2007 kl. 14:05
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.