28.8.2007 | 10:02
Enn Eitt vígið að falla
Hamborgari, salat, sósa,
sögðu Stuðmenn best að fá.
Vegasjoppum vildu hrósa,
víst þeir óku mikið þá.
Hljómsveitir það syrgja svekktar
sameini þeir Stað og Brú.
Beikonpylsur býsna þekktar
býður Enn Einn flestum nú.
![]() |
Sjoppufákeppni hræðir poppara |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Ljóð | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
27.8.2007 | 09:26
Hann hefur keypt sér málband... (sjá síðustu færslu)
Hætti hún Alba við hálfvolgan mann;
hanga hann vildi á kránum;
þar til hún kynþokkakosningu vann,
kom hann þá aftur á hnjánum.
![]() |
Alba aftur á fast |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Ljóð | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
26.8.2007 | 18:29
Allt er nú hægt að reikna
Stærðfræðina margir meta
meira fyrst að það er ljóst
að kynþokkann nú karlar geta
kannað fyrir neðan brjóst.
http://www.mbl.is/mm/folk/frett.html?nid=1287589
Ljóð | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
25.8.2007 | 13:57
Hörð keppni
Þó sumum reynist erfitt að sigla á réttum kili,
er sannarlega gaman í auðmennina að spá.
Því leikurinn er einfaldur í lífsins sjónarspili
að lokum hver sá vinnur sem að mesta dótið á.
http://www.mbl.is/mm/vidskipti/frett.html?nid=1287430
http://www.mbl.is/mm/vidskipti/frett.html?nid=1287449
(Þetta eru sennilega of viðkvæmar fréttir til að það megi tengja beint við þær, eða hvað?)
Ljóð | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
24.8.2007 | 20:29
Alltaf heppnir
Heppnin fylgir okkur enn,
ekki þurfum við að kvarta.
Valdasjúkir vondir menn
vilja eignast gullið svarta.
![]() |
Garrí Kasparov: Íslendingar heppnir að eiga enga olíu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Ljóð | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
23.8.2007 | 09:33
Suma má ekki styggja
Ástarhandföng út skal má,
enginn vill nú styggja
forsetann, það flestir sjá
að fyrir- telst það -hyggja.
![]() |
Ástarhandföngin" máð út |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Ljóð | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
22.8.2007 | 14:46
En þó ekki Valgeir, eða hvað?
Á síðustu tónleikum sást enginn brosa,
þeir sannlega klikkuðu töluvert þá.
Nú hátíðardagskrá þeir hafa í Mosa
og hefðbundna Stuðmenn við fáum að sjá.
![]() |
Hefðbundnir Stuðmenn á Varmárvelli |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Ljóð | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
21.8.2007 | 14:55
Fjölgar þá fegrunaraðgerðum?
Tekjur virðast taka keim
af tísku í hverju landi.
Allir vilja þóknast þeim
sem þykja aðlaðandi.
![]() |
Fallegt fólk þénar mest |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Ljóð | Breytt s.d. kl. 16:24 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
20.8.2007 | 15:53
Kæru leysi er þetta
Lögbrotin eru í lagi
ef Landvernd hún skiptir sér af.
Og ekki er augljóst að klagi
yfirvald það sem að svaf.
![]() |
Kæru Landverndar vegna framkvæmda í Heiðmörk vísað frá |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Ljóð | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
20.8.2007 | 15:43
Þetta er skattastefna USA
Auðkýfingur skattaskjólið
skundar í án sorga.
Litla manninn lætur fólið
lífsgæði sín borga.
![]() |
Bandarísk hóteldrottning látin |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Ljóð | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)