1.1.2012 | 11:04
10. Saga Akraness: Það var búið að jarða hana áður en Páll gagnrýndi
|
Þetta er klúður ársins |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Ljóð | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
8.9.2011 | 10:45
Endimörk
Knörr þú átt, kostafley,
keikur þú horfir úr stafni.
Framtíð æ felst í því
fundvísum treystir þú hrafni.
Áfram svo, endalaust,
á meðan heldur þú nafni.
Lifir þú lífið af
láttu það enda á safni.
Hugur þig hálfa leið
hefur úr óminnisflaumi.
Áræðnin upp þér nær
yfir þó bulli og kraumi.
Allir fá af því nóg
eilíft að standa í glaumi.
Lifir þú lífið af
láttu það enda í draumi.
Fordild oft flekar hug
fjandann við aldrey þó grátum.
Mistökin manna þig,
mótlætistrú ey við játum.
Hugrekki, hamingja,
halda þér yfirleitt kátum.
Lifir þú lífið af
láttu það enda í gátum.
Lífið er lostadans,
leika þar mildi og harka.
Frelsi er fárra völ,
flestir í gegn um það slarka.
Lengst þú nærð líki þér
löngum af krafti að þjarka.
Lifir þú lífið af
láttu það enda án marka.
Ljóð | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
9.4.2011 | 16:58
Að aflokinni atkvæðagreiðslu
Með óbragð í munni um æseif ég kaus
og atkvæði gildu fékk skilað,
en umræðum landans mér hugur við hraus,
á heiftina af einurð var spilað.
Í skútunni þjóðar hver skrúfa er laus;
er skrítið að eitthvað sé bilað?
|
Varar Íslendinga við |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Ljóð | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
8.4.2011 | 12:31
Íslensk umræðuhefð
Ég viðurkenni á mig allskyns brot
af ósamþykktum hugsunum,
og ef að ég í þrætum kemst í þrot
þríf ég mig úr buxunum.
Á netinu ég naga ófá bök
og nafnleysið þá hvetur mig,
en IP-talan ein er mín svo stök -
það oft í klemmu setur mig.
Litlum fuglum legg ég eyrun við
og Leitis-Gróu þekki ég.
Andstæðingum fáum gef ég frið
og framsóknarmenn hrekki ég.
Mér himinbláa höndin vísar leið
að háleitasta markinu:
að fláræðisins gata verði greið
með grófu hreðjasparkinu.
|
Harka í ESB-umræðum Framsóknar |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Ljóð | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
11.2.2011 | 09:15
Er ekki íslenska krónan lögeyrir á Íslandi?
Ef þeir borga þetta í íslenskum krónum - skuld íslensks fyrirtækis við annað íslenskt fyrirtæki - fyrir hvers konar samningsbrot yrðu þeir þá kærðir, og hver væri refsingin?
Geta þeir ekki bara depónerað greiðslunni og farið svo í mál?
|
Fær ekki nægan gjaldeyri |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
18.1.2011 | 17:12
Ranghalarófa
Landið þau erfðu af hagsýnum hjónum
sem höfðu það ræktað svo vel,
og hlunnindin góðu frá heiðum og sjónum
hirtu nú Leggur og Skel.
En vinnan var erfið til viðhalds þeim gæðum
og væntingum gróðæris til,
svo námskeið þau sóttu í fjármagnsins fræðum
og fjárhættu- lærðu þá -spil.
„Vini“ þau fundu með vitneskju næga
um vélráð og arðrán og plott
sem veittu þeim ráðgjöf um verkamenn þæga
og veðlán og peningaþvott.
Og Leggur og Skel töldu leiðina greiða
og lífsgæðakapphlaupið hófst,
en landið á spottprís tókst „vinum“ að veiða
og vefurinn flæktist og ófst.
Þau dönsuðu kónga í ranghalarófu
rambandi á hengiflugsbrún
en ótýndir „vinirnir“ óðar upp grófu
hvert einkavætt peningatún.
Svo stóðust ey loforðin, leiktjöldin hrundu
og Leggur og Skel fengu sjokk.
Af „hógværum“ lánum á herðum nú stundu:
„Helvítis Fokkings Fokk!“.
Ef holan þig gleypir þú hættir að moka,
á himininn stillir þú mið,
og leggur þá frá þér hvern peningapoka
sem pressar þig niður á við.
En Leggur og Skel þetta lærðu víst ekki
og líklegast moka þau enn
og vefja sig fastar í framtíðarhlekki
sem fjármagnsins- seldu þeim -menn.
Ljóð | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Nú hefur manni skilist á allri umræðu um launagreiðslur til skilanefndarmanna að þetta væri rúmlega fullt starf og fólk jafnvel svæfi ekki af álagi.
Svo er bara nægur tími til að sinna almennum lögmannsstörfum í leiðinni! Eða er þetta rangur misskilningur hjá mér?
|
Verjandi situr í eftirlitsnefnd |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
5.1.2011 | 11:25
Á að grafa flokkinn á miðjum fundi?
„Þingflokksfundur VG hefst í dag kl. 12 á hádegi. Fundarhlé verður gert vegna jarðarfarar um kl. 14.30 og áætlað er að fundi verði framhaldið um kl. 17 síðdegis í dag...“
„Frásögn um margboðað morð“
má hér í fréttinni sjá.
Vinstri-Græn varnaðarorð
varla til flokksmanna ná.
|
Óþreyja og pirringur að aukast hjá vinstri grænum |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Ljóð | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
28.12.2010 | 18:11
Peningagaldur - þetta ætti að vera kennt í grunnskólum...
... og vera til prófs til að komast í framhaldsnám: http://www.vald.org/greinar/101116.html
Þetta kristallar líka átökin í Vinstri-Grænum núna. Steingrímur er á fullu að verja þetta kerfi, á meðan Lilja vill komast undan því. Og svo er Lilja kölluð lýðskrumari af sérvöldum álitsgjöfum fjölmiðlanna - sem nota bene er stýrt af banksterum.
28.12.2010 | 13:02
Spurning varðandi fyrirtækjastjórnendakönnunina
Sambærileg könnun sem gerð var fyrir samtök atvinnulífsins (sjá hér: http://www.sa.is/frettir/almennar/nr/5023/) virðist vera nokkurn vegin jafn dökk og hjá okkur „neytendum“. Ég var þó aðeins að skoða bjartsýnistölurnar í þeirri könnun, og eftirfarandi er ekki alveg að dansa í mínum kolli:
„Þeir örfáu stjórnendur sem telja aðstæður góðar starfa í sjávarútvegi og í iðnaði en í öðrum greinum telur enginn að aðstæður séu góðar.“ ... „ Í upphaflegu úrtaki voru 418 stærstu fyrirtæki landsins (miðað við heildarlaun) og var svarhlutfall var 44%“
1% af 44% af 418 reiknast mér til að séu 1,8392 fyrirtæki. Ætli þetta séu þá ekki stjórnendur tveggja fyrirtækja sem eru bjartsýnir, og þar af annar þeirra í sjávarútvegi og hinn í iðnaði?
Einnig: eru stjórnendur þeirra 56% fyrirtækja sem engin svör berast frá á þessari sömu línu, og má þá reikna með að öll sjávarútvegsfyrirtæki svari eins og þetta eina sem svaraði jákvætt, eða eru 99% þeirra ekki eins bjartsýn og þessi eini?
|
Íslendingar svartsýnir í árslok |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Ljóð | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)



arinol
hof
kaffi
birgitta
gisgis
gattin
limped
rassgat
einari
hallurg
rattati
hoskibui
naflaskodun
nonniblogg
offari
radda
toshiki
tharfagreinir
thorsaari