Flótti frá flokknum?

Fyrir ári síðan vildu meira en sautjánhundruð manns taka þátt í að kjósa sér formann.

Nú nenntu því ekki nema rétt rúmlega níuhundruð.

Og um það bil eitthundrað þeirra fóru þá heim og nenntu ekki að kjósa sér varaformann.

Sum sagt. Rétt rúmlega fimmtíuprósent heimtur í formannskjörið eftir ár í stjórnarandstöðu við eina klaufalegustu stjórn lýðveldistímans.

Ætli evrópuskoðanirnar hefðu ekki haft annan blæ ef flokkurinn væri ekki að fullkomna umbreytingu sína í einangrunarsinnaðan frjálshyggjuöfgaflokk?

 

Brostinn er flótti í flokkinn

því fleytan er lek sem hrip.

Götóttan settu í sokkinn

og sjófært þá telja skip.


mbl.is Þrengir ekki stöðu Sjálfstæðisflokksins
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Þessi fundur var auka landsfundur fór ekki núna en vonandi kemst ég á landsfundinn.Hvað gerðu VG og Samf þau héldu fund með útvöldum úr þeirra röðum, segir það ekkert um þau. Treystu þau sig ekki til að mætta ágreiningi innan sinna flokka.

Sigurbjörg Jónsdóttir (IP-tala skráð) 28.6.2010 kl. 10:53

2 identicon

Kórrét hjá þér Sigurbjörg:)

Óskar (IP-tala skráð) 28.6.2010 kl. 11:38

3 Smámynd: Billi bilaði

Jú, Samfó og VG eru næstum jafn slæm og þið. En svo skal böl bæta að benda á eitthvað annað.

Billi bilaði, 28.6.2010 kl. 11:42

4 Smámynd: Dingli

Þúsundum milljarða!Var stolið af Íslensku þjóðinni undir stjórn Sjálfstæðisflokksins.  Að nokkur forustumaður þar gangi enn laus, er glæpsamleg vanræksla saksóknara og dómskerfis.  

Dingli, 28.6.2010 kl. 12:23

5 Smámynd: Dingli

AAAAAAAAAAaaaaaaaarrrrrG!!  Gleymdi að hæla þér fyrir skeytluna.  

Dingli, 28.6.2010 kl. 12:29

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband